MSN
mattih@torg.is og hafrunosk@msn.com

   

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Sunday, May 07, 2006
YESS !!

Arsenal tryggdi sér 4 sætið í premier league og þar með sæti í meistaradeildinni að ári, á kostnað Tottenham :) Gæti ekki verið sætara! ! Svo er bara að taka Barca í úrsl.leik champions league þá er tímabilið rúmlega góðkennt.

Það er helst að frétta að ég skrifaði undir samning við Marienlyst á miðvikudaginn en þeir eru núverandi danskir meistarar. Hægt að sjá smá um það hér og hér

Ég valdi sem sagt að spila sjálfur í staðinn fyrir að taka við dönsku meisturunum í kvenna blakinu. Það verður spennandi að spila í evrópukeppninni og berjast um bikar - og meistaratitilinn á næsta tímabili.

Farið að sjá fyrir endann á B.s ritgerðinni, vonandi klárast hún í næstu viku. Kannski pínu bjartsýni en það Þíðir ekkert annað :)

Kveðja úr sólinni í baunalandi

Matthías

Posted at Sunday, May 07, 2006 by mattih
Comments (1)  

Wednesday, April 26, 2006
Gott tilefni til að blogga!

Jú, ætli þið hafið ekki giskað á hvað tilefnið er. Arsenal komið í úrslit champions league i fyrsta skipti í sögu félagsins. Voru reyndar hrikalega slakir í leiknum í gær en það hafðist einhvernvegin að halda markinu hreinu.

Annars erum við að fara að flytja í sumar. Förum ekki langt, eina 8 km út fyrir miðbæinn í raðhús með garði og 3 svefnherbergjum svo eitthvað sé nefnt. Það verður allt annað líf fyrir Emil að hafa garð og herbergi fyrir allt dótið sitt :)
Það verður stutt fyrir mig á golfvöllinn (7-800metrar), þannig að kannski forgjöfin fari að lækka eitthvað.

Kem væntanlega með smá blakfréttir hérna á næstu dögum, það fer að skýrast hvað maður gerir á næsta ári. Er allavegna með tvö mjög spennandi tilboð þannig að það er bara gaman.

MH

Posted at Wednesday, April 26, 2006 by mattih
Comments (3)  

Monday, March 20, 2006
blogg aldrei þessu vant....

Alltaf lætur maður líða jafn langt á milli bloggs...svona er þetta. Er annars búinn að vera að hugsa um það að blogga síðan Arsenal vann Liverpool um daginn, það var ekki leiðinlegt! :) Var líka mjög sætt að slá Real Madrid út úr meistaradeildinni. Næst er bara að taka 4 sætið af Tottenham og rúlla Vieira og Juventus upp í meistaradeildinni.

Nóg um fótbolta og yfir í blakið. Erum orðnir nokkuð öruggir að vera áfram í Elite deildinni á næsta tímabili. Unnum mikilvægan leik í gær 3-0 og í síðustu viku 3-1 á móti liðum sem eru líka að berjast um að komast upp.
Annars er það helst að frétta úr blakinu að það er búið að bjóða mér að taka við kvennaliði í elite deildinni, sem er frekar spennandi. Kemur væntanlega í ljós á næstu dögum hvort ég og klúbburinn náum samkomulagi í samb. við laun og slíkt. Getið séð liðið hérna www.fortuna-odense.dk veljið hold og svo elitedamer.

Var út í skóla til 05 í nótt...púff átti að skila prófritgerð á hádegi í dag og hún var kláruð í nótt. Góður endasprettur það. Veit nú ekki hversu góð hún er en það kemur í ljós í næstu viku.

Fuglaflensan mætt á svæðið hérna í DK, greyið endurnar fá örugglega ekki mikið brauð næstu mánuðina get ég ímyndað mér. Halda sér allir langt frá þeim í görðunum hérna núna.

Ég nenni ekki að bíða lengur eftir vorinu...það má alveg koma NÚNA! Spái því að það komi með pompi og prakt í byrjun apríl þegar Hafrún og Emil verða á Íslandi, í páska hretinu sem kemur þar :) Það væri alveg týpiskt. Kv. Bauninn.

Posted at Monday, March 20, 2006 by mattih
Comments (2)  

Saturday, February 04, 2006
daddara

Unnum ASV 3-1 í dag frekar þægilega.
1. sæt 25 - 14
2. sæt 22 - 25
3. sæt 25 - 16
4. sæt 25 - 14

Veit ekki alveg hvaða aulaháttur það var að tapa 2 setti en svona virðist þetta alltaf vera hjá okkur. Spilaði fínan leik, vantar samt smá uppá að móttakan sé alveg eins góð og hún á að vera. Getið séð stöðuna í deildinni hérna Við erum efstir eins og er.

En jédúddamía ég fékk portúgalveiki dauðans um síðustu helgi, annað eins hefur ekki gerst síðan í Portúgal hérna um árið í fótboltaferð, og já...sumir voru svo óheppnir að vera að í flugvélinni á leiðinni heim, svei það hefur ekki verið gaman. Var allavegna feginn að hafa mitt eigið klósett...

Hvernig er það þarna heima, er horft á Super Bowl ? Þetta er mjög stórt hérna og það enginn maður með mönnum án þess að fara í super bowl partý. Ég ætla allavegna að gera tilraun til að vaka yfir þessu, er reyndar þekktur fyrir að sofna í hálfleik...og það er engin Janet í ár til að halda manni vakandi, ansans.

Styttist í skíðaferðina...vÍííÍ


Posted at Saturday, February 04, 2006 by mattih
Comments (1)  

Wednesday, January 25, 2006
Er ekki rétt að láta heyra aðeins í sér...

Það er farið að sjá fyrir lokin á prófstressinu, loksins! Fer í síðasta prófið á föstudaginn. Er svo ekki að meika að lesa fyrir það...videnskabsteori og etik...spennandi #hóst#

Annars er erfitt að segja hvernig hefur gengið í prófunum. Er búinn að fá úr 3 prófum og það var 10, 8 og 5. Á eftir að fá úr 2 + þessu sem ég fer í á föstudaginn. Á s.s eftir að fá úr fagi sem heitir biomekanik og öðru sem heitir því mjög svo lipra nafni "fysisk aktivitet sygdomsforebyggelse og behandling" eða FASB eins og við köllum það.

Arsenal gerir í brók viku eftir viku, ekki gott og Mr. Wenger keypti auðvita einhverja efnilega krakka sem kannski verða góðir eftir 5 ár... og auðvita Mart Poom, ekki má gleyma honum. Hefði viljað sjá einn sterkan, reyndan miðjumann á innkaupslistanum en sá draumur rætist ekki héðan af.
En sáuði aukaspyrnuna hjá Robin V. Persie á móti Wigan í gær? Sá hana í fréttunum í morgun, flottasta mark úr aukaspyrnu sem ég hef séð. (OK fyrir utan Roberto Carlos þegar hann spilaði með Inter hérna um árið, það var rugl aukaspyrna)

Blakið er komið af stað aftur, erum að spila elite kvalifikation núna. Tvö efstu liðin vinna sér inn sæti í elite deildinni á næsta tímabili. Fyrsti leikurinn var á laugardaginn í Kbh. á móti Lyngby og hann tapaðist 3-2. Ég var ekki með vegna próflesturs. Spiluðum svo í gærkvöldi á heimavelli við Skaarup og unnum 3-1. Spilaði ekkert sérlega vel en ekkert illa heldur. Gaman að vinna samt, eitthvað sem ég hef bara prufað 2 sinnum með DHG.

Er búinn að ákveða hvað B.s ritgerðin mín á að fjalla um. Reyndar ekki búinn að ákveða það í smáatriðum en það verður rannsókn á því hvernig sé best að þjálfa lóðréttan stökk kraft. Verða 1 eða 2 æfingar hópar sem æfa með því að gera plyometrisk æfingar annars vegar og plyom. + ballistic lyftingar hinsvegar og svo kontról grúbba sem gerir ekki neitt. Svo verður stökk krafturinn mældur á svotilgerði mottu í rannsóknarstofunni fyrir, í miðju og að æfingatímabilinu loknu. Kenningin er að plyo + ballistic lyftingar (30-60% af max með hoppi t.d jump squat) gefi bestan árangur. Spennó.

Það var nú bara ansi ljúft að blogga aðeins (líka góð afsökun fyrir að vera ekki að læra...var búinn með allar hinar afsakanirnar!) kannski maður fari að gera þetta að vana aftur, að blogga þ.e

Og já...við erum að fara í skíðaferð til Austuríkis 17-24 feb. hvað verður það gaman. Fljúgum til Munchen og tökum bílaleigubíl þar og keyrum til Austuríkis. Can´t wait....

MH

Posted at Wednesday, January 25, 2006 by mattih
Comments (3)  

Sunday, December 04, 2005
jólahjól

Unnum Hvidovre 3-1 í gær og það var ágætis tilbreyting. Þeir gátu ekki neitt og samt vorum við skuggalega nálægt því að tapa 2 hrinum fyrir þeim. Unnum 2 fyrstu örugglega, töpuðum 3 24-26 og unnum 4 26-24 eftir að hafa verið undir 20-24!
Ég spilaði ágætlega og hafði það bara sæmilegt í náranum. Ég og Emil kíktum svo á Marienlyst - Gentofte í dag og þann leik vann Marienlyst 3-1. Þokkalegur munur á gæðunum í þessum leik í dag og á þessu kellingablaki sem við vorum að spila í gær, úff ekki fallegt.

Arsenal skeit á sig í gær á móti Bolton og maður býður bara spenntur eftir að leikmannaglugginn opni... miðjumaður í heimsklassa (Ballack t.d) væri vel þeginn...

Er fólk alveg að átta sig á því að það eru að koma jól? Ég er enganveginn að kveikja að það sé kominn desember...

MH

Posted at Sunday, December 04, 2005 by mattih
Make a comment  

Friday, December 02, 2005
ekki mikið nýtt...

Erum að fara að spila við Hvidovre á morgun, reyndar spurning hvort ég geti verið með. Fór illa í náranum í síðasta leik þannig að það skýrist bara í upphitun hvort ég spili.

Tíminn hljóp frá mér þannig að þetta verður ekki lengra í bili...

MH

Posted at Friday, December 02, 2005 by mattih
Make a comment  

Monday, November 21, 2005
Morgun blogg

Er ekki rétt að skrifa aðeins hérna svona til að byrja vikuna.

Get byrjað á blaki. Spiluð við Gentofte í frystinum ( eins og ég hef valið að kalla Riskovshallen... brrrrrrrrrrrr það var svo kalt að það svitnaði ekki neinn! það þurfti ALDREI að þurka gólfið) En allavegna...við töpuðum leiknum 3-1 eftir að hafa unnið fyrsta set 25-20. Fannst eins og menn væru bara sáttir við að hafa unnið hrinu, frekar pirrandi. Gentofte er með fínt all round lið og gæti alveg blandað sér í titilbaráttuna. Annars spilaði ég örugglega besta leikinn minn með DHG hingað til sem jákvætt. Síðustu 2 leikirnir í "grundspillet" er svo við lið í neðrihlutanum sem við eigum að geta unnið, sem væri skemmtileg tilbreiting!
Brassinn þeirra var ekki með, en hann er 183 og á víst að geta smassað loftbolta. Þætti gaman að sjá það, er eflaust með ágætis gorma.
Mynnir mig á það þegar Marian kom á fyrstu æfinguna með þrótti Nesk hérna um árið. Byrjaði eflaust á því að segja Apostolov að spila upp aðeins yfir netið og svo bara látið vaða fyrir framan 3m og uppí loft...synd að hann gat ekki spilað vörn né smassað backspike, þá hefðum við verið djöfulli góðir. Nóg um blak...nennir örugglega enginn að lesa þetta :)

Annars er dagurinn þétt setinn...tímar frá 10-16, þjálfa stelpur frá 16-18, þjálfa golfara frá 19-20:30 (lyftingar til að fyrirbyggja meiðsli) 21- ... sófi.

Annars var ég að sjá að Sævar var búinn að skjóta í getrauninni ... get nú ekki gefið þér rétt, ert samt ekki langt frá því þannig séð. Rétt svar í stuttu máli er :
Hypertrofi = vöðvaþræðirnir eru "eyðilagðir" af þjálfun og byggðir upp aftur stærri en fyrr.
Hyperplasi (sem er umdeilt) Þegar vöðvaþræðirnir eru orðnir verulega stórir getur verið að þeir skipti sér í tvennt og algjörlega nýr vöðvaþráður verður til. Ekki hefur tekist að sanna að þetta geti gerst í manneskjum.

Jæja, þarf víst að drattast í skólann. Fyrirlestur frá 10-16 zzZZZzzzz

MH

Posted at Monday, November 21, 2005 by mattih
Make a comment  

Saturday, November 05, 2005
God morgen!

Flensu skítur búinn að vera að angra mig þessa vikuna, frekar pirrandi að vera svona "hálf veikur". Líða drullu illa en samt ekki nógu illa til að vera bara heima! En þetta er nú allt að lagast...

Fjarðabyggd búið að ráða Þorvald Örlygsson sem þjálfara, gaman að því að það sé kominn metnaður í boltann fyrir austan. Hann hlýtur að fá ágætis upphæð á mánuði...einhver sem hefur heyrt eitthvað um samninginn hans?

Las einnig á spjallinu hjá Fjarðabyggð að það væri 99% líkur á að það væri komið gervigras á malarvöllinn heima fyrir næsta sumar! Og það er formaður knattspyrnudeildar sem kemur með þessa fullyrðingu. Hefur einhver heyrt eitthvað um þetta? Ef satt er, þá er það auðvita bara snilld. Sorglegt að horfa uppá þennan malarvöll þarna, aldrei notaður og með eitt af betri vallarstæðum á landinu.

Spiluðum við Holte á sunnudaginn....töpuðum 3-0. Gátum ekki neitt. Fannst ég reyndar taka vel á móti, örugglega verið með 2.2 - 2.5 í meðaltal en það er víst ekki nóg þegar smassararnir geta ekki lamið boltann niður. Spilum við Gentofte í bikarnum á morgun og ég hef ekki spilað blak síðan síðasta sunnudag! Góður undirbúningur fyrir leik hmmm.

MH

Posted at Saturday, November 05, 2005 by mattih
Comments (3)  

Friday, October 28, 2005
Barnaafmæli,ritgerð,keppa i Kbh., mót hjá stelpunum sem ég er að þjálfa og ég á sjálfur afmæli! púfff það verður nóg að gera þessa helgina...

Já, það er þétt setin þessi helgi. Á að skila prófverkefni (lokapróf) í einu fagi á þriðjudaginn, sé fyrir mér að ég eigi eftir að gera mikið í því um helgina...eða ekki. Á eftir að skrifa diskussion, konklusion og perspektivering. Það hlýtur að reddast á mánudaginn. Er annars að skrifa um anoreksiu og hvernig coping hæfileikar og stress hafa áhrif á(að mínu mati) að sumir fá átraskanir en aðrir ekki - nokkuð spennandi bara, finnst þér ekki? (Asnalega erfitt að útskíra hvað ég er að skrifa um á íslensku! #buni!#)

Höldum uppá afmælið hans Emils á morgun, gaurinn að verða 1 árs á þriðjudaginn! Ótrúlegt alveg hvað þessi tími líður.

Á morgun í miðju afmæli(vinsælt) bruna ég svo til Köben. Erum að fara að keppa við Holte kl. 17:00 og það dugar ekkert annað en sigur! Vonandi að við verðum ekki jafn lélegir og á æfingu í gær #ARG# Hef sjaldan haft jafn vitlaust skrúaðar hendur á eins og þær voru á tímabili. En það var allavegna ekki bara ég sem gat ekki neitt, sem er jákvætt og neikvætt :)

Missi af Tottenham - Arsenal á morgun, skandall.
Get ekki svarað í laugardagsgetrauninni á slaginu 19:00 - skandall
Læt mig hverfa í miðju 1. árs afmæli sonar míns - rúmlega skandall #samviskubit#
Arsenal tapar fyrir Tottenham - Pínlegur skandall!
Vinnum fyrsta leikinn á tímabilinu á morgun - sem er jákvætt!
Verð 25 á sunnudaginn! - Það er alveg jákvætt sko, held ég.

Ein spurning - Ertu að lyfta?Pumpa lóðum? Veistu eitthvað hvað þú ert að gera þegar þú ert að lyfta eða geriru bara eitthvað? Notaru tækin eða lausu lóðin og hnébeigjuna og allt það? Endilega kommentið ef þið eruð, eða hafið verið í ræktinni. Er forvitinn...

Nóg af bulli í bili.

Góða helgi

Posted at Friday, October 28, 2005 by mattih
Comments (19)  

Next Page